|
Skrifað af Arnþór Gústavsson
|
|
Fimmtudagur, 27. Maí 2010 13:53 |
|
Fyrir skemmstu var haldið slöngubátanámskeið í Sveinsbúð sem var ágætlega sótt. Einhver kraftur virðist hafa losnað úr læðingi hjá bátahóp sem hefur verið óvenju duglegur við að fara á sjó uppá síðkastið. Um síðustu helgi (Hvítasunnuhelgina) héldu 5 vaskir sveinar úr bátahóp í nætursiglingu og lögðu upp frá Reykjum á tveimur slöngubátum. Ferðinni var heitið út í Drangey en ekki höfðu sveinarnir siglt lengi þegar sá sem elstur er og sjóndaprastur í hópnum rak augun í hóp af hvölum. Lengi vel héldu ferðalangar að þeir væru að horfa á hrefnur en eftir því sem best verður komist voru skepnurnar hnúfubakar. Ef eitthvað er að marka hinn alvitra hr. wikipedia eru dýrin gjarnan um 36 tonn og 12-16 m. á lengd, en samkvæmt sömu heimild geta dýrin orðið umtalsvert stærri og þyngri. Ekki er gott að henda reiður á það hversu mörg dýr voru á ferðinni en þau voru öðru hvoru megin við tuginn. Þegar dýrunum hafði verið fylgt eftir á rólegheita siglingu í nokkurn tíma fór að draga til tíðinda. Á að giska 30 m. frá öðrum bátnum spratt ein skepnan upp á yfirborðið og gott betur, hentist raunar svo langt á loft að enginn hluti skepnunar nam við hafflötinn. Sveinarnir ungu urðu við þetta meira en lítið hissa og þeir sem yngstir eru í hópnum hófu upp skræki sem minntu helst á smásteplur að hlusta á popptónleikum. Uppnámið jafnaði sig þegar hinir eldri og vitrari höfðu róað hina ungu og lítt reyndu hvalaskoðunarmenn. "Ég er ekki vanur að horfa til himins þegar ég er að skoða hvali" var haft eftir einum af hinum þrautreyndu köppum sem voru í ferðinni. Annar bætti við að tilfinningin hafi verið sérstök, "ekki svo að skilja að við séum ekki til í að taka farþega, það fer bara ekki vel um farþega af þessari stærðargráðu í bát Skagfirðingasveitar". Það skiptir engum togum að dýrið skaust svona uppá sjóndeildarhringinn einum fimm sinnum áður en yfir lauk. Fyrir rest tókst að ná lifandi myndbroti af dýrinu, þegar það tók síðasta stökkið. Vegna tæknilegra vankanta er ekki hefur ekki reynst mögulegt að koma öllu myndefninu á vefinn. Hér að neðan er slóð á stutt myndskeið sem var splæst saman en myndgæðin eru ekki eins og best verður á kosið. Ef að tækniörðuleikar verða yfirstignir stendur til að setja inn fleiri myndbrot, m.a. þar sem hvalurinn synti á bakinu og veifaði báðum bægslunum áður en hann synti á braut. http://www.youtube.com/watch?v=fx1U7EAGrx4 |
|
Síðast uppfært Fimmtudagur, 27. Maí 2010 14:06 |
|
|
Atvinnulífssýning 23. - 25. apríl |
|
|
|
|
Skrifað af Guðbjörg Óskarsdóttir
|
|
Miðvikudagur, 14. Apríl 2010 08:33 |
|
Skagfirðingasveit hefur tekið að sér gæslu á Atvinnulífssýningu sem haldin verður helgina 23. - 25. apríl n.k. í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Þeir meðlimir sem hafa náð 18 ára aldri og eru reiðubúnir til að aðstoða við gæslu eru beðnir um að hafa samband við Guðbjörgu í síma 868-5028. |
|
Síðast uppfært Miðvikudagur, 14. Apríl 2010 08:42 |
|
Skrifað af Arnar Snær Gunnarsson
|
|
Þriðjudagur, 17. Febrúar 2009 19:52 |
|
Í tilefni af 112 deginum, í dag 11.2 var mikið húllumhæ á planinu utanvið Skagfirðingabúð. Viðbragðsaðilar á svæðinu mættu með sýnishorn af búnaði sínum og tækjum sem var til sýnis fyrir gesti og gangandi. Börnum bauðst að upphefjast í körfubíl Brunavarna Skagafjarðar auk þess sem áhættuatriði voru framkvæmd af einni helstu hetju Skagfirðingasveitar Stefáni Val (Stebba Spotta). Stefán seig niður úr körfubíl Brunavarnanna þar sem hann var í hæstu stöðu á eftirminnilegan hátt. Slysavarnadeid Skagfirðingasveitar gaf þeim sem vildu þiggja bókamerki og endurskinsmerki í tilefni dagsins. Myndir frá atburðinum er að finna í albúmi sem nálgast má undir hlekknum "Gallery" hér til hliðar. 
|
|
Síðast uppfært Þriðjudagur, 17. Febrúar 2009 20:14 |
|
|
Skrifað af Arnar Snær Gunnarsson
|
|
Laugardagur, 11. Apríl 2009 03:22 |
|
Á aprílfundi Slysavarnadeildar Skagfirðingasveitar var fulltrúa frá Skíðasvæðinu í Tindastóli afhentar þrjár talstöðvar að gjöf frá Slysavarnadeildinni sem keyptar voru í samráði við Björgunarsveitina. Það er von okkar að talstövarnar nýtist sem öryggistæki á skíðasvæðinu með hindrunalausu sambandi milli starfsmanna. Einnig geta þær komið sér vel þegar samstarf er við Björgunarsveitina, svo sem á Vetrarleikum og öðrum stærri atburðum í fjallinu. Á myndinni eru: Valdimar Pétursson, Björgunarsveit, Sigurður Bjarni Rafnsson, frá Skíðasvæðinu, Guðrún Ingólfsdóttir, Gunnar Pétursson, Guðný Guðmarsdóttir, Ólafía K. Sigurðardóttir og Kristín Br. Ármannsdóttir frá Slysavarnadeild Skagfirðingasveitar. |
|
Síðast uppfært Laugardagur, 11. Apríl 2009 03:23 |
|
Skrifað af Arnar Snær Gunnarsson
|
|
Þriðjudagur, 17. Febrúar 2009 19:57 |
|
Unglingadeild Björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveitar, unglingadeildin Trölli fór í frækna ferð uppí Trölla um liðna helgi. Tveir vaskir sveinar úr sveitinni stjórnuðu ferðinni af miklum vaskleik, þeir Agnar Gíslason og Jón Hörður Elíasson. Hópurinn fékk gott veður og tóks ferðin vel í alla staði. Myndir úr ferðinni má finna myndaalbúmi hér til hliðar. 
|
|
Síðast uppfært Þriðjudagur, 17. Febrúar 2009 20:14 |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 2 |